Útgefið gæðaskjal
Skjalnúmer:-582
Útgáfudagur:02/24/2011
Útgáfa:4.0
Ábyrgðarmaður:Ásbjörn Ólafsson
B B18.xx Takmarkaður ásþungi

Reglugerð um umferðarmerki:
Á merkið skal letra mesta leyfilegan ásþunga á ás með fjórum hjólum. Þyngd áss með tveimur hjólum og þyngd á tví- og þríás skal vera í samræmi við reglur um þyngd ökutækja. Tveir síðustu stafir í númeri tákna tilgreinda þyngd í heilum tonnum. Þannig hefur merkið sem hér er sýnt númerið 18.05.

Vinnureglur um notkun:
Merki þetta ber að nota þar sem ásþungi ökutækja er takmarkaður umfram það sem sagt er fyrir um í reglugerð nr. 155/2007 um stærð og þyngd ökutækja (síðari breytingar aftan við reglugerð)

Á merkið skal letra tölugildi þeirrar ásþungareglu sem er í gildi.

Merki þetta skal að jafnaði ekki sett upp nema stuttan tíma í einu, þ.e.a.s. þegar þungatakmarkanir eru í gildi.

Merki þetta skal sett upp þar sem takmörkun byrjar og jafnframt er heimilt að setja merkið við upphaf tengivegar eða á leið að viðkomandi vegi og skal þá númer eða auðkenni þess vegar eða vegarkafla, þar sem takmörkunin gildir, gefið upp á undirmerki. Ef vísa þarf á aðrar leiðir má gera það með viðbótarmerkjum á upplýsingatöflu.

Sjá nánar
Takmörkun á heildarþyngd og ásþunga ökutækja