Útgefið gæðaskjal
Skjalnúmer:-577
Útgáfudagur:02/24/2011
Útgáfa:3.0
Ábyrgðarmaður:Ásbjörn Ólafsson
B B13.xx Takmörkuð breidd ökutækja

Reglugerð um umferðarmerki:
Mesta leyfileg breidd ökutækja, með eða án farms, skal letruð á merkið. Tveir síðustu stafir í númeri tákna tilgreinda breidd í metrum með einum aukastaf. Þannig hefur merkið sem hér er sýnt númerið B13.22.

Vinnureglur um notkun:
Merki þetta ber að nota þar sem breidd ökutækja er takmörkuð umfram það sem sagt er fyrir um í reglugerð nr. 155/2007 um stærð og þyngd ökutækja (síðari breytingar aftan við reglugerð)


Merki þetta skal sett upp þar sem takmörkun byrjar og jafnframt er heimilt að setja merkið við upphaf tengivegar eða á leið að viðkomandi vegi og skal þá númer eða auðkenni þess vegar eða vegarkafla, þar sem takmörkunin gildir, gefið upp á undirmerki. Ef vísa þarf á aðrar leiðir má gera það með viðbótarmerkjum á upplýsingatöflu eða bráðabirgðamerki.

Sjá nánar:
Bráðabirgðamerki - Umferðartakmörkun