Almenn verkefni 2019
Almenn verkefni 2019
Heiti verkefnis : | Grímsvatnahlaup: vatnsgeymir, upphaf og rennsli | |
Verkefnastjóri : | ||
Stutt lýsing á verkefninu: | ||
1. Vöktun vatnshæðar í Grímsvötnum 2. Mæling afkomu og ísskriðs á ísa- og vatnasviði Grímsvatna 3. Mat á afrennsli yfirborðsleysingavatns til Grímsvatna 5. Könnun á vatnsrás í jökulhlaupum frá Grímsvötnum með úrvinnslu safns gervitunglagagna og GPS mælingum á jökli 5. Athugun á þróun þykktar íshellunnar í Grímsvötnum 6. Áframhaldandi þróun reiknilíkana sem lýsa jökulhlaupum
| ||
Tilgangur og markmið: | ||
Vöktun Grímsvatna. Fylgst verður með söfnun vatns í Grímsvötnum og metið hvenær líklegt er að hlaup verði og hve stórt það gæti orðið. Metnar verða líkur á jökulhlaupum og stærð þeirra frá Grímsvötnum. Þá verður fylgst með vatnshæð Grímsvatna á hverjum tíma og veðvörun gefin ef hlaup hefur hafist. Þá verur fylgst með hve mikið vatn getur safnast fyri í Grímsvötnum, en möglegt rúmtak þeirra hefur minnkað á síðustu árum. Fylgst verður með breytingum vegna eldvirkni og jarðhita sem hafa áhrif á vatnssöfnun í Grímsvötn og hættu vegna jökulhlaupa. Vatnsmagn á hverjum tíma er metið út frá hæð íshellu Grímsvatna sem mæld er tækjabúnaði í Grímsvötnum og á Grímsfjalli, auk mælinga og athugana í ferðum um Grímsvötn og notkun ýmissa fjarkönnunargagna. Gögn frá mælistöð til vöktunar á vatnshæð Grímsvatna hafa þegar nýst til að vara við Grímsvatnahlaupi með dags fyrirvara. Gagna er aflað m.a. með íssjá og GPS sniðmælingum til að fylgjast með breytingum í stærð vatnsgeymis Grímsvatna, lögun yfirborðs og botns íshellu Grímsvatna. Ísstífla Grímsvatna laskaðist mjög í hlaupinu í kjölfar Gjálpargosinu 1996 og einnig vegna aukins jarðhita með suðurbrún Grímsfjalls í kjölfar eldgosanna 1998, 2004 og 2011. Fyglst verður með því hvernig ísstíflan þróast og hvort stefni að því í náinni framtíð að verulegt vatn geti safnast fyrir í Grímsvötnum eins og raunin var í ártugi fyrir atburðina 1996. Einnig eru unnin eða aflað nákvæmra yfirborðshæðarlíkan sem gerð eru eftir flug- og gervihnattamælingum, til að fylgjast með breytingum í Grímsvötnum og nágrenni þeirra. Afkomumælingar eru gerðar (og stafræn kort af dreifingu afkomunnar) á ísa og vatnsviði Grímsvatnalægðarinnar og þær m.a. notaðar til að meta rúmmál bræðsluvatns af yfirborði sem fellur til Grímsvatna. Ísflæði til íshellu Grímsvatna er metið með mælingu á ísskriði gegnum þversnið við norður og austurbrúnir þeirra. Röð nýlegra yfirborðshæðarlíkana má nota með eldri gögnum um yfirborð sem tiltæk eru til að meta heildarafkomu svæðisins á nokkrum tímabilum síðustu áratugi (var gert 2018, sjá. Reynolds og fl. 2018). Þessi gögn nýtast ásamt fleiru til að endurmeta varmaafl Grímsvatna. Gögn um Grímsvatnahlaup hafa í áratugi á heimsvísu verið nýtt til að auka skilning á eðli jökulhaupa og þróa eðlisfræðilega lýsingu á hegðun þeirra og reiknilíkön til að herma þau.
|