Almenn verkefni 2020
Almenn verkefni 2020
Heiti verkefnis : | Öryggisupplifun, viðhorf og ferðamáti ungs fólks og foreldra þeirra, borið saman við raunverulega slysahættu | |
Verkefnastjóri : | ||
Stutt lýsing á verkefninu: | ||
Öryggistilfinning vegfarenda er oftar en ekki í ósamræmi við raunverulega áhættu. Þetta veldur því að einkabíllinn er valinn umfram virkan og vistvænan ferðamáta og foreldrar treysta ekki börnum sínum til þess að komast sjálf á milli staða í sínum daglegu ferðum. Þegar um ungt fólk þarf að þvera stofnæðar á höfuðborgarsvæðinu má ætla að óöryggi og neikvæð viðhorf foreldra hafi töluverð hamlandi áhrif á virkan og | ||
Tilgangur og markmið: | ||
Sótt er um 3 mánaða frest á verkefni sem fékk styrk 2019 vegna tæknilegra tafa, en verkefnið á inni 20% lokagreiðslu. Skil eru áætluð í lok maí - byrjun júní 2020. ---- Tilgangur verkefnisins er að skoða viðhorf og ferðavenjur ungs fólks sem á daglega leið yfir stofnleiðir í Reykjavík í samhengi við raunverulega slysatíðni á sömu stofnleiðum. Skoðað verður hvaða þýðingu viðhorf og ferðavenjur foreldra hafi á ferðamáta unga fólksins. Skoðað verður hvort að lykilviðburðir einstaklingsins og/eða fjölskyldunnar hafi áhrif á núverandi ferðamáta Kannað verður hvort að unnt sé að framkvæma markhópagreiningu á unga fólkinu eftir völdum lykilbreytum
|