Almenn verkefni 2020
Almenn verkefni 2020
Heiti verkefnis : | Slitlög | |
Verkefnastjóri : | ||
Stutt lýsing á verkefninu: | ||
Verkefninu er skipt upp í fjóra hluta: 0. ýmsar slitlagarannsóknir, I. malarslitlag, II. klæðingu og III. malbik. Í hverjum hluta eru nokkrir verkþættir skilgreindir, en mun ítarlegri útlistun á þeim er að finna í fylgiskjali, enda rúmast þær skilgreiningar ekki hér. Undir hluta 0 (ýmsar slitlagarannsóknir) eru eftirfarandi verkþættir: a) Samanburður slitlagsgerða m.t.t. kostnaðar og endingar. b) Prófanir á bikbindiefnum. c) Rannsóknir á malbiki, klæðingu og malarslitlagi með veggreini, nýjum mælibíl Vg. Undir hluta I (malarslitlög) eru eftirfarandi verkþættir: a) Heimildakönnun. b) Endurskoðun verklýsinga. c) Skráning í gagnakerfi. d) Tilraunakaflar. Undir hluta II (klæðing) eru eftirfarandi verkþættir: a) Vetrarblæðingar. b) Samanburður á hrærivélum við framkvæmd raunblönduprófs á viðloðun - áhrif fínefna á viðloðun í klæðingum. c) Rannsóknir á klæðingarefnum. d) Tilraunir með bindiefni í klæðingar. e) Rannsóknir á skemmdum í klæðingum. f) Prófanir og rannsóknir á steinefnum með misgóða niðurstöðu úr raunblönduprófi á viðloðun. g) Samantekt klæðingarannsókna fyrri ára. Undir hluta III (malbik) eru eftirfarandi verkþættir: a) Áhrif fínleika og efnisgerðar mélu (e. filler) á eiginleika malbiks. b) Samræming á gagnakerfum um malbik milli Reykjavíkurborgar og Vg. c) Hitadreifing í malbiki við útlögn. d) Þunnt stífmalbik – hagkvæmni og raunhæfur valkostur – heimildakönnun og tilraunalagnir. e) Endurvinnsla malbiks. f) Samantekt malbiksrannsókna fyrri ára. | ||
Tilgangur og markmið: | ||
0 a): Styðja við ákvarðanir þegar kemur að vali á slitlagi hvort sem er vegna viðhalds eða nýbygginga m.t.t. til hagkvæmni mismunandi slitlagsgerða. 0 b): Koma á samningi við prófunarstofu um að koma upp búnaði til að prófa bikbindiefni. Gera samanburðarrannsóknir með nýjum tækjum við viðurkennda stofu. 0 c): Leggja mat á hvernig veggreinirinn getur nýst rannsóknarverkefnum við úttektir á tilraunaköflum. I a) til d): Bæta efnisvinnslu og verklag við útlögn malarslitlaga, en einnig alla skráningu á malarslitlögum, námum, vegköflum, þykktum, ártölum og í slitlagabanka Vg. II a): Þróa uppskrift fyrir þjálbik með íblöndunarefni sem minnkar hættu á vetrarblæðingum. II b): Kanna hvort mismunandi gerðir hrærivéla gefi sambærilegar niðurstöður úr prófinu. II c): Halda áfram rannsóknum á gerð og magni íblöndunarefna að teknu tilliti til undirlags, steinastærða, hreinleika og annarra þátta. II d): Innleiða íblöndunarefni í klæðingar hérlendis, bæði með bikþeytu og þjálbiki. II e): Leita að orsökum skemmda í klæðingum með úttektum á þeim þegar skemmda verður vart. II f): Kanna áhrif þenjanlegra leirsteinda í steinefni í þunnsneið á viðloðun í raunblönduprófi. II g): Gefa út í skýrslu og gagnagrunni heildaryfirlit yfir niðurstöður klæðingarrannsókna undanfarinna ára. III a): Kanna með prófblöndum hvaða kröfu um fínleika mélu er ástæða til að innleiða og áhrif mismunandi gerða mélu á einleika malbiks. III b): Skilgreina og innleiða samræmda skráningu gagna um slitlög, efnisgerðir, aldur og viðgerðir milli Reykjavíkur og Vegagerðarinnar. III c): Samfelldar hitamyndir verktaka skili sér til Vg til að tryggja rétt hitastig við útlögn og þjöppun. III d): Fylgjast með lögn tilraunakafla með þunnu stífmalbiki og fylgjast með endingu þeirra. III e): Kanna með tilraunalögnum hvernig unnt er að nýta birgðir af malbikskurli með íblöndun í burðarlag vega. III f): Gefa út í skýrslu yfirlit yfir helstu niðurstöður malbiksrannsókna undanfarinna ára. |