Almenn verkefni 2021
Almenn verkefni 2021
Heiti verkefnis : | Slitlög | |
Verkefnastjóri : | ||
Stutt lýsing á verkefninu: | ||
V Verkefninu er skipt upp í fjóra hluta: 0. ýmsar slitlagarannsóknir, I. malarslitlag, II. klæðingu og III. Malbik. Í hverjum hluta eru nokkrir verkþættir skilgreindir, en mun ítarlegri útlistun á þeim er að finna í fylgiskjali, enda rúmast þær skilgreiningar ekki hér. Undir hluta 0 (ýmsar slitlagarannsóknir) eru eftirfarandi verkþættir: a) Samanburður slitlagsgerða m.t.t. kostnaðar og endingar, b) Prófanir á bikbindiefnum, c) Rannsóknir á malbiki, klæðingu og malarslitlagi með veggreini, nýjum mælibíl Vg. Undir hluta I (malarslitlög) eru eftirfarandi verkþættir: Hefur brothlutfall, kornalögun og efnisstyrkur malarslitlaga meira vægi en leirmagn? Hvaða verklag hentar best við dreifingu salts? Undir hluta II (klæðing) eru eftirfarandi verkþættir: a1) Vetrarblæðingar, a2) Getur plast leyst vandamál með vetrarblæðingu í klæðingu á Ísland? b) Yfirfæra framkvæmd raunblönduprófs á hefðbundnar hrærivélar prófunarstofa, c) Rannsóknir á bindiefnismagni og íblöndunarefnum í klæðingar, d) Tilraunir með bindiefni í klæðingar, e) Rannsóknir á skemmdum í klæðingum, f) Kanna áhrif þenjanlegra leirsteinda í steinefni á viðloðun. g) Greining á viðloðunarhæfni steinefna. Undir hluta III (malbik) eru eftirfarandi verkþættir: a) Áhrif fínleika og efnisgerðar mélu (e. filler) á eiginleika malbiks, b) Hitadreifing í malbiki við útlögn, c) Þunnt stífmalbik, hagkvæmni, heimildakönnun og tilraunalagnir, d) Holrýmdarkröfur. Prófblöndur, lekt, slitþol, frostþol og vatnsnæmi. e) Viðgerðir. Mat á núverandi aðferðum og reynt að leggja til nýjar, s.s. sprungu- og holufyllingar. f) Dúkar undir malbiksviðgerðir á burðarlagsskemmdum svæðum. g) Plast í burðarlagsmalbik – hringrásarhagkerfið. h) Plast í burðarlagsmalbik og kalblandað malbik, örplastsmengun og kolefnissparnaður. i) Frostþíðupróf fyrir malbikssýni, yfirfærsla á steypustaðli. j) Notkun lífolíu til að auðvelda endurvinnslu malbiks. k) Mælingar á hemlunarviðnámi. | ||
Tilgangur og markmið: | ||
0 a):Styðja við ákvarðanir við val á slitlagi m.t.t. til hagkvæmni mismunandi slitlagsgerða. 0 b):Koma á samningi við prófunarstofu um að koma upp búnaði til að prófa bikbindiefni. 0 c):Leggja mat á hvernig veggreinirinn getur nýst við úttektir á tilraunaköflum. I Bæta efnisvinnslu og verklag við útlögn malarslitlaga, skráning á malarslitlögum, námum, vegköflum, þykktum og ártölum í slitlagabanka Vg. II a1): Þróa uppskrift fyrir þjálbik sem minnkar hættu á vetrarblæðingum. II a2): Getur plast leyst vandamál með vetrarblæðingu í klæðingu á Ísland? II b): Innleiða notkun annarra hrærivéla við raunblöndupróf. II c): Halda áfram rannsóknum á bindiefnum og magni að teknu tilliti til undirlags, steinastærða o.fl. II d): Innleiða íblöndunarefni í klæðingar hérlendis, bæði bikþeyta og þjálbik. II e): Meta ástand klæðinga með úttektum. II f): Kanna áhrif þenjanlegra leirsteinda á viðloðun. II g): Markmið að öðlast dýpri skilning á viðloðun milli bindiefnis og steinefnis. III a): Kanna hvaða kröfu um fínleika mélu er ástæða til að innleiða. III b): Úrvinnsla hitamynda, verklag. Refsing eða umbun? III c): Greining á þunnum malbikslögum sem þegar hafa verið lögð, m.t.t. hjólfaramyndunar, endingar, umferðar o.fl. III d): Holrýmd, prófblöndur. Metin verður lekt, slitþol, frostþol og vatnsnæmi við mismunandi holrýmd og holrýmdarkröfur Vg mögulega endurskoðaðar. III e): Viðgerðir. Mat á núverandi aðferðum og skoðun á nýjum. III f): Dúkar undir malbiksviðgerðir á burðarlagsskemmdum svæðum. Prófað í vegi og metið. III g): Plast í burðarlagsmalbik – hringrásarhagkerfið. Greining/fýsileikakönnun. III h): Plast í burðarlagsmalbik og kaldblandað malbik, örplastsmengun og kolefnissparnaður. III i): Frostþíðupróf fyrir malbikssýni, yfirfærsla á steypustaðli. III j): Notkun lífolíu til að auðvelda endurvinnslu malbiks. III k): Mæla nokkra kafla með misjafnan umferðarþunga, staðsetningu og kornastærð. Meta þróun bremsuviðnáms. |