Almenn verkefni 2022

Heiti verkefnis : 

Útfærsla á nýrri tengingu milli forsteypts stöpulveggjar og staðsteypts sökkuls.

Verkefnastjóri : 

 

Stutt lýsing á verkefninu:

 

Markmið verkefnisins er þróa nýja tengingu milli forsteypts stöpulveggjar og staðsteypts sökkuls til að lágmarka og stytta framkvæmdatímann á byggingarstað. Smíðuð verða tvö prófstykki í 60% skala og prófuð á spennigólfi í VR-III byggingu Háskóla Íslands sem hýsir rannsóknar aðstöðu umhverfis- og byggingarverkfræðideildar Háskóla Íslands. Fyrra prófstykkið verður útfært eins og um staðsteypta útfærslu er um að ræða en það síðari með nýju tengingunni. Prófstykkin verða svo borin saman til að athuga hvort nýja tengingin sé jafngóð eða betri en staðsteypt útfærsla sem notuð er í dag.

Verkefnið er unnið sem meistaraverkefni í byggingarverkfræði við Háskóla Íslands í samstarfi við Vegagerðina, BM Vallá og Vistu verkfræðistofu.

Tilgangur og markmið:

 

Ný burðarvirki og byggingaraðferðir eru nauðsynlegar til að draga úr verktíma á framkvæmdastað. Ein lausn til að draga úr byggingartengdum töfum er að forsteypa burðareiningar utan vinnusvæðis og setja þær saman þegar þær koma á staðinn. Þessi nálgun bætir einnig öryggi starfsmanna og eykur byggingargæði.

Þessi rannsókn gengur út á að þróa nýja tengingu milli veggja (eininga) og staðsteypts sökkuls með því markmiði að einfalda framkvæmdina. Komin er tillaga að tengingu en hún er þróuð út frá lausn sem var notuð í brúnni yfir Jökulsá á Dal. Mynd 1 sýnir tillögu á tengingunni (sjá Fylgiskjal með myndum).

Kostir tengingarinnar:

·    Meðhöndlun og flutningur er auðveldur

·    Tengingin er einföld. Engin járn standa út úr tengingunni sem geta aflagast við flutning og/eða við uppsetningu.

·    Einfaldar smíði einingar

Ókostir:

·    Undirstaðan gæti þurft að vera aðeins dýpri eða þykkari (til að minnka skerspennur) en gerist í útfærslu staðsteyptrar tengingar. Rannsóknir
     sýna þó að skerspennur séu ekki vandamál ef einingunni er stungið niður í sökkulinn sem nemur veggþykkt einingar.

Fyrirhuguð byggingarröð:

·         Einingar eru forsteyptar. Á sama tíma getur verktaki verið að undirbúa vinnusvæðið

·         Neðri járnagrind er komið fyrir

·    Einingar eru hífðar á sinn stað og stilltar af

·    Járn í efri grind eru stungið í gegnum göt á veggnum

·    Gengið frá járnagrind í sökkli og hann steyptur á staðnum.

Smíðuð verða tvö prófstykki í 60% skala:

Prófstykki 1 - Smíðað eins og um staðsteypta útfærslu væri að ræða

Prófstykki 2 - Smíðað með nýrri útfærslu tenginga sem byggir á notkun forsteyptra eininga.

Prófun fer fram á tilraunagólfi byggingarverkfræðideildar við Háskóla Íslands. Hún fer þannig fram að tjakkur ýtir lárétt á vegginn í eina átt (e.monotonic loading) og hermir þannig passífan jarðþrýsting.