Almenn verkefni 2022
Almenn verkefni 2022
Heiti verkefnis : | Vatnafræðileg svörun nokkurra íslenskra vatnasviða við áætluðum loftslagsbreytingum á 21. öld. | |
Verkefnastjóri : | ||
Stutt lýsing á verkefninu: | ||
Reiknað er með að loftslagsbreytingar á næstu áratugum muni leiða til breytinga á hitastigi og úrkomu sem getur aftur haft áhrif á eiginleika vatnafars. Þar af leiðandi má gera ráð fyrir að tölfræðilegir eiginleikar rennslis vatnasviða síðustu áratuga eigi ekki við þegar horft er til komandi áratuga. Marktækar breytingar á núverandi árstíðabundnu rennsli í ám getur haft áhrif á stjórnun vatnsauðlinda, rekstur vatnsaflsvirkjana og flóðahættu. Þetta er áskorun sem samfélagið stendur frammi fyrir. Mikilvægt er að aðlögunaraðgerðir, sem miða að því að auka viðnámsþol samfélagsins byggi á áreiðanlegum framtíðarspám um áhrif loftslagsbreytinga á eiginleika vatnasviða. Markmið þessa verkefnis er að kanna áhrif loftslagsbreytinga á komandi áratugum á eiginleika meðal- og há- rennsli fyrir nokkur vatnasvið í mismunandi landshlutum.
| ||
Tilgangur og markmið: | ||
Markmið þessa verkefnis er að kanna áhrif loftslagsbreytinga á komandi áratugum á eiginleika meðal- og há- rennsli vatnasviða. Rennslisraðir verða hermdar með vatnafræðilíkani og með klasa loftslagssviðsmynda fyrir tímabilið 1981-2100 fyrir nokkur vatnasvið í mismunandi landshlutum. Mögulegar breytingar á eiginleika meðal- og há- rennsli vatnasviða verða metnar ásamt óvissu. Verkefnið mun svara eftirfarandi spurningum:
|