Útgefið gæðaskjal
Skjalnúmer:-037
Útgáfudagur:06/23/2009
Útgáfa:2.0
Ábyrgðarmaður:Ásbjörn Ólafsson
Dreifbýli Hraðamerkingar

Hraðamerki
Merki sem fylgja gjarnan hraðamerkjum
Við þjóðvegi utan við mörk þéttbýlis (á vegum lengri en 2 km) og utan marka þeirra svæða þar sem sértakar hraðatakmarkanir eru í gildi eiga að vera hraðamerki B26.

Eftirfarandi hámarkshraði gildir nema annað sé tekið fram:
90 km hámarkshraði á vegum með bundnu slitlagi
80 km hámarkshraði á malarvegum

Vinnureglur um staðsetningu merkjanna:
  • Sitt hvoru megin 500 m frá vegamótum við þjóðvegi fyrir umferð sem ekur frá vegamótunum. Ef tvö eða fleiri vegamót við þjóðvegi eru á 3 km kafla eða styttri skal merkja þau eins og um ein vegamót væri að ræða, þ.e. með merki út frá vegamótum í endum kaflans og merkjum á milli þeirra sleppt
  • Áður en komið er að vegamótum með lækkuðum hámarkshraða í 500 m fjarlægð frá vegamótum
  • Áður en komið er að vegamótum í 500 m fjarlægð frá vegamótum ef vegalengd frá síðasta hraðamerki er á milli 20 til 30 km
  • Fyrir báðar akstursstefnur með að jafnaði ca. 15 km millibili ef fjarlægð frá síðasta hraðamerki er meiri en 30 km, nema þar sem aðalbraut liggur um óbyggð svæði og engin biðskyldumerki eru fyrir hendi. Í þeim tilfellum skal setja merki 500-1000 m áður en komið er að fyrsta afleggjara með biðskyldumerki.
  • Utan við mörk þéttbýlis (á vegum lengri en 2 km) og utan marka þeirra svæða þar sem sérstakar fastar hraðatakmarkanir eru í gildi skal að jafnaði setja upp merki 200-500 m utan við merki D12.21 þéttbýli lýkur eða þar sem sérstökum hraðatakmörkunum lýkur
  • Þar sem stuttur tengivegur (< 2 km) frá þéttbýli tengist inn á stofnbraut skulu merkin að jafnaði staðsett 200-300 m sitt hvorum megin við vegamótin (t.d. við Hólmavík, Þórshöfn, Djúpavog)
Þar sem ÁDU > 500 b/dag skal þvermál B26 merkja vera 800 mm annars 600 mm, þó er heimilt að nota minni merki þar sem umferðarhraði er lítill.
Þar sem ÁDU > 5000 b/dag skulu að jafnaði vera tvö merki sitt í hvorum vegkanti á fyrstu hraðamerkingu frá þéttbýli.
Þar sem tvær eða fleiri samliggjandi akreinar eru í sömu átt skulu vera tvö merki sitt í hvorum vegkanti.

Show details for Málsetning af hraðamerkingu með stórum merkjum, aðalbrautarrétti og vegnúmeriMálsetning af hraðamerkingu með stórum merkjum, aðalbrautarrétti og vegnúmeri
Hide details for Lækkun hámarkshraðaLækkun hámarkshraða
Lækkun á leyfðum hámarkshraða skal vera í minnst 10 km/klst-ar áföngum. Þar sem hraði er lækkaður um 40 km/klst eða meira skal það gert í tveimur þrepum og skal fyrra merkið vera staðsett a.m.k. 200 m áður en komið er að því merki sem sýnir endanlegan leyfilegan hraða.

Heimilt er að lækka hámarkshraða í eftirfarandi tilfellum:
  • Í jarðgöngum
  • Á vegum sem liggja um útivistar- ferðamanna- og sumarhúsasvæði
  • Á vegum þar sem sérstök önnur hætta getur steðjað að ökumönnum s.s. langtíma vegaskemmdir, grjóthrun eða skriðuföll
  • Á vegum sem ekki uppfylla megin öryggiskröfur vegstaðals (gildir aðeins um stofn- og tengivegi)

Jarðgöng:
Í einbreiðum göngum er heimilt að lækka hraða í 50 km/klst
Í tvíbreiðum göngum er heimilt að lækka hraða í 70 km/klst

Vegir sem liggja um útivistar- ferðamanna- og sumarhúsasvæði:
Fyrir útivistar- ferðamanna- og sumarhúsasvæði og á öðrum svæðum þar sem vænta má mikillar umferðar gangandi fólks og ekki eru sérstakir göngustígar til að aðskilja umferð akandi og gangandi er heimilt að lækka hámarkshraða í 50 km/klst.
Dæmi:
  • Grímsnes í Biskupstungum
  • Skorradalsv. Stálpastaðir, Fitjahlíð
  • Hvítársíða v. Bjarnastaði
  • Við Meðalfellsvatn
  • Húsafell
  • Hallormsstaðaskógur
  • Bláfjöll

Vegir þar sem sérstök önnur hætta getur steðjað að ökumönnum s.s. langtíma vegaskemmdir, grjóthrun eða skriðuföll.
Dæmi:
  • Siglufjarðarvegur um Stráka
  • Óshlíð
  • Súðavíkurhlíð
  • Hvalnesskriður
  • Þvottárskriður

Vegir sem ekki uppfylla megin öryggiskröfur vegstaðals (gildir aðeins um stofn- og tengivegi)
Heimilt er að lækka hámarkshraða á vegum eða vegarköflum þar sem vegur er hannaður fyrir minni hraða eða þar sem gæðum vegferils er verulega ábótavant og ekki er raunhæft að merkja með aðvörunarmerkjum og merkjum um leiðbeinandi hraða. Til að vikið verði frá almennum reglum um hámarkshraða þarf viðkomandi kafli að vera a.m.k. 10 km að lengd, meðalvegbreidd að vera undir 6 m og vegsýn verulega skert og/eða fleiri en 2 beygjur/km (20 beygjur/10km) sem reiknast með hönnunarhraða 20 km/klst undir leyfðum hámarkshraða. Heimilt er að lækka leyfilegan hámarkshraða um allt að 40 km/klst eftir aðstæðum hverju sinni.
Dæmi:
  • Vatnsleysustrandarvegur
  • Vegur um Lyngdalsheiði
  • Vegur um Öxi
  • Kaflar á Strandavegi
  • Öxarfjarðarheiði
  • Sandsheiði
Show details for Breytilegur hámarkshraðiBreytilegur hámarkshraði
Show details for ÞéttbýlissvæðiÞéttbýlissvæði