Almenn verkefni 2019
Almenn verkefni 2019
Heiti verkefnis : | Deiliskipulag þjóðvega í þéttbýli | |
Verkefnastjóri : | ||
Stutt lýsing á verkefninu: | ||
Á síðustu árum og áratugum hefur það aukist jafnt og þétt að unnið er deiliskipulag fyrir vegsvæði, þegar kemur að framkvæmdum á vegakerfinu. Þetta á sérstaklega við þar sem vegir eru í þéttbýli. Ætla má að á næstu árum muni þessi þróun halda áfram. Kemur það m.a. til vegna krafna um að upplýsa almenning um veghelgun, hljóðvist og öryggismál, og tilkomu Borgarlínu. Með Borgarlína verður töluverð aukning á tilvikum þar sem unnið er deiliskipulag fyrir vegsvæði, þar sem samþætta þarf ólíka samgöngumáta og landnotkun innan vegsvæðisins. Ekki er augljóst hvort og þá hvenær er æskilegt að unnið sé deiliskipulag vegna framkvæmda á vegum. Þar að auki eru þau deiliskipulög sem þegar hafa verið unnin fyrir vegsvæði ólík og ekki rammi til staðar fyrir þau atriði sem æskilegt er að sé tekið tilli til eða fjallað um við gerð deiliskipulags vegsvæða í þéttbýli. Til að draga fram þau atriði sem þarf að hafa í huga í sambandi við deiliskipulag vegsvæða, fjallar verkefnið annars vegar um hvort og þá hvenær skuli vinna deiliskipulag fyrir þjóðvegi í þéttbýli. Hins vegar er fjallað um þá þætti og úrlausnaratriði sem þarf að leysa þegar unnið er deiliskipulag fyrir vegsvæði. | ||
Tilgangur og markmið: | ||
Tilgangur verkefnisins er að svara spurningunni hvort og þá í hvaða tilvikum skuli vinna deiliskipulag fyrir þjóðvegi í þéttbýli; og draga fram þau atriði sem þarf að hafa í huga þegar unnið er deiliskipulag fyrir vegsvæði í þéttbýli. Verkefnið er talið eiga erindi við Vegagerðina þar sem Vegagerðin hefur í mörgum tilfellum frumkvæði að slíkum verkefnum, í samvinnu við sveitarfélögin Til að svara spurningunni um hvort og þá hvenær skuli unnið deiliskipulag fyrir vegi í þéttbýli verða eftirfarandi þættir lagðir til grundvallar:
Í þeim tilvikum þegar unnið er deiliskipulag fyrir vegsvæði geta komið upp fjölmörg atriði sem ekki er augljóst hvernig er æskilegt að útfæra í skipulagsvinnunni. Fjallað verður um eftirfarandi þætti sem tengjast vinnslu deiliskipulagsáætlana fyrir vegsvæði, sem og þau atriði sem gætu komið fram í greiningu og í viðtölum. Eftirfarandi þættir verða lagðir til grundvallar í þeirri vinnu:
|