Almenn verkefni 2024
Almenn verkefni 2024
Heiti verkefnis : | Vöktun útbreiðslu lúpínu vegna framkvæmda við nýbyggingu Skriðdals og Breiðdalsvegar ásamt brú yfir Gilsá á Völlum | |
Verkefnastjóri : | ||
Stutt lýsing á verkefninu: | ||
Verkefnið varðar vegaframkvæmdir á Skriðdals- og Breiðdalsvegi við Gilsá/Grímsárvirkjun (kafli 95-02). Við framkvæmdirnar var m.a. notað efni frá efnistökusvæðum þar sem alaskalúpína vex og fræ hennar eru því til staðar í jarðveginum. Flutningur efnis af þessu svæði hefur valdið áhyggjum um aukna útbreiðslu lúpínu á og við framkvæmdasvæðið í kjölfar framkvæmda. Til þess að sporna við því stendur til að hreinsa um 30-40 cm lag ofan af námusvæðum þar sem lúpínugróður er og nota sem mest efni frá lúpínulausum námasvæðum í fyllingar, vakta útbreiðslu lúpínu á svæðinu í kjölfar framkvæmda og halda henni í skefjum skyldi hún fara að breiðast út. Grunnathugun hefur þegar farið fram, en að beiðni Sveins Sveinssonar hjá Vegagerðinni gerði Náttúrustofa Austurlands (NA) athugun á útbreiðslu lúpínu við framkvæmdasvæðið og á efnistökusvæðum þann 20. september 2021, sem var viðbótargróðurskoðun í verkinu.
| ||
Tilgangur og markmið: | ||
Markmið verkefnisins er að meta áhrif vegaframkvæmda á útbreiðslu framandi tegunda vegna notkunar efnis sem tekið er af svæðum þar sem lúpína vex, auk þess að meta árangur af aðgerðum til að halda henni í skefjum. Tilgangur þess er að auka þekkingu á áhrifum einfaldra, árlegra aðgerða til að halda dreifingu lúpínu í skefjum fyrstu fimm árin eftir framkvæmdir þar sem notaður er efniviður með lúpínufræi.
Rannsóknarspurningarnar sem svarað verður í lok rannsóknar eru: Hver er útbreiðsla lúpínu á framkvæmdasvæðinu, fimm árum eftir lok framkvæmda? Hvaða áhrif hafa aðgerðir til að halda lúpínu í skefjum í kjölfar framkvæmda haft á útbreiðslu hennar þar? |