| Endurskoðun á jarðtæknistaðlinum Eurocode 7 ásamt íslenskum þjóðarviðauka hefur staðið yfir frá árinu 2010. Eurocode 7 hefur verið tekinn upp hérlendis sem og á hinum Norðurlöndunum og gildir um alla jarðtæknilega hönnun og rannsóknir og er einn af skyldubundnu þolhönnunarstöðlunum skv. byggingarreglugerð. Fyrir allmörgum árum stofnuðu norrænu jarðtæknifélögin spegilnefnd um verkefnið (Nordic Mirror Group for EuroCode 7, NMGEC7) þar sem fulltrúar Norðurlandanna taka virkan þátt í endurskoðuninni sem einn hópur. Formaður norrænu spegilnefndarinnar er jafn framt í samevrópska vinnuhópnum um endurskoðun jarðtæknistaðalsins. Íslendingar eiga 3 fulltrúa í spegilnefndinni; þá Davíð Rósenkrans Hauksson, Þorgeir S. Helgason og Benedikt Stefánsson. Mikilvægt er að hagsmuna Íslands sé gætt í endurskoðun jarðtæknistaðalsins, og þar sem jarðtækni er stór þáttur í starfi Vegagerðarinnar er talið nauðsynlegt að sjónarmið hennar komi fram og að niðurstöður séu kynntar starfsmönnum, ráðgjöfum og verktökum Vegagerðarinnar. Endurskoðun EC7 er langtímaverkefni og er ný útgáfa mjög langt komin. Meginvinnan hér eftir er því í að uppfæra íslenskan þjóðarviðauka og samræma við þjóðarviðauka hinna Norðurlandanna þar sem við á. Sem hluti af þeirri uppfærslu, hefur NMGEC7 hafið starf við að draga fram fyrir hvert land og lýsa formlega og breyta eftir þörfum, hefðbundnum hönnunaraðferðum (e. prescriptive rules), en vísa má í slíkar aðferðir í þjóðarviðauka. Dæmi um slíkar reglur eða aðferðir á Íslandi eru leyfilegt álag á klöpp, sem er þegar í gildandi þjóðarviðauka en þarf að yfirfara, og E-gildi skv. plötuprófi en þarf sömuleiðis að yfirfara. Vinna íslensku nefndarinnar að þjóðarviðauka við EC7 fer fram í samstarfi og á fundum með vinnuhópi sem Byggingarstaðlaráð (BSTR) hefur skipað til gerðar viðaukans. Afrakstur þessarar vinnu verður einnig kynntur fyrir Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) með það í huga að hún nýtist við gerð leiðbeininga, s.s. RB-blaða, á vegum stofnunarinnar. Þegar ný útgáfa jarðtæknistaðalsins liggur fyrir er stefnt að almennri kynningu á staðlinum á meðal jarðtæknifólks og hagsmunaaðila en nú þegar hafa helstu breytingar verið kynntar. |